Byrjendapakki

Byrjendapakki

Byrjendapakkinn er fyrir þá sem vilja taka sín fyrstu skref í golfi og byggja upp góðan grunn með einstaklingsmiðaðri golfkennslu. Pakkinn inniheldur fjóra 45 mínútna einka- eða paratíma þar sem farið er yfir helstu grunnatriði leiksins.

Í fyrsta tímanum er farið yfir pútt, í öðrum tímanum vipp og stutta spilið og í þriðja og fjórða tímanum er unnið með fulla golfsveiflu.

Ólíkt hefðbundnum golfnámskeiðum fyrir byrjendur, þar sem margir þátttakendur eru saman í hópi, fær hver nemandi meiri athygli og markvissari endurgjöf. Kennslan er sniðin að þörfum og getu hvers og eins, þannig að allir fái góðan grunn til að byggja áfram á.

Byrjendapakkinn er 10% ódýrari en sambærilegur fjöldi stakra kennslutíma.

  • Byrjendapakki fyrir einn: 54.000 kr.

  • Byrjendapakki fyrir tvo: 64.800 kr.

Hægt er að fá frekari upplýsingar með tölvupósti á gudmundur@nkgolf.is eða í síma 849-1996.

Kaupa byrjendapakka

Price range: 54.000 kr. through 64.800 kr.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkur:

Guðmundur Örn Golfkennsla slf.
460326-2220

 

849-1996
gudmundur@nkgolf.is

 

Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnesi
Nesklúbburinn, 170 Seltjarnarnesi