Spilkennsla
Spilkennsla
Gengur vel á æfingasvæðinu en illa út á velli? Margir kylfingar tapa höggum á vellinum einfaldlega vegna þess að þeir eru með lélegt leikskipulag eða ekkert leikskipulag yfir höfuð. Spilkennsla er fyrir kylfinga sem vilja læra betur að leysa úr ólíkum aðstæðum sem koma upp á vellinum og/eða taka ákvarðanir sem lágmarka líkurnar á háu skori.
Í spilkennslu förum við meðal annars yfir hvernig við veljum skynsamleg skotmörk, kylfuval í mismunandi aðstæðum og hvernig er best að bregðast við erfiðum aðstæðum. Markmiðið er að fækka höggunum á vellinum án þess að reyna að breyta þeirri tækni eða færni sem þú býrð yfir núþegar.
Á sumrin (1. maí – 1. október) er hægt að bóka spilkennslu á Nesvellinum eða inni í golfhermi. Á veturna fer öll spilkennsla fram í golfhermum Nesklúbbsins á Austurströnd 5.
Guðmundur Örn Golfkennsla slf.
460326-2220
849-1996
gudmundur@nkgolf.is
Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnesi
Nesklúbburinn, 170 Seltjarnarnesi