Trackman Tölurnar

Það er í eðli sínu frekar einfalt að slá góð golfhögg. Til þess þurfum við að hitta boltann vel og geta stýrt lokastefnu höggsins.

Margir nemendur sem koma til mín í fyrsta skipti hugsa mikið um tæknileg atriði eða ákveðnar hreyfingar í sveiflunni, án þess þó að hafa skýran skilning á því hverju þær eiga að skila eða hvað þarf raunverulega að gerast til að boltinn fari þangað sem við viljum.

Þegar ég kenni í Trackman golfhermi horfi ég fyrst og fremst á fimm lykiltölur til að greina hvað veldur góðum og slæmum höggum: Low Point Distance, Impact Height, Impact Offset, Face Angle og Club Path.

Ég legg mikla áherslu á að nemendur mínir skilji hvað þessar tölur segja okkur og geti með tímanum notað þær til að greina eigin högg og leiðrétta mistök á eins einfaldan og skilvirkan hátt og hægt er.

Tölurnar gefa okkur skýra endurgjöf um hvað gerðist í hverju höggi. Þegar höggið fer ekki eins og við viljum getum við því oft séð strax hvaða breyta, eða breytur, voru ekki eins og við viljum hafa þær.

Þannig getum við æft markvissar, skilið betur hvað veldur mismunandi boltflugi og einbeitt okkur að þeim breytingum sem skipta mestu máli fyrir hvern kylfing.

Hér að neðan er farið yfir hvað þessar fimm tölur þýða, hvernig þær tengjast gæðum höggsins og hvernig hægt er að nota þær til að skilja betur hvað gerðist í hverju höggi.

Að hitta boltann vel (Low distance, Impact height og Impact offset)

Þegar boltinn liggur á grasi, þ.e. ekki á tíi, skiptir mestu máli að kylfan fari í jörðina á réttum tíma og að boltinn sé hittur sem næst miðju kylfuhaussins.

Við viljum að fyrsta snerting kylfunnar við grasið verði við boltann eða rétt eftir að boltinn er sleginn. Trackman getur ekki mælt nákvæmlega hvar kylfan snertir jörðina fyrst, en hann getur mælt hvar lægsti punktur sveiflunnar er. Sú tala kallast Low point distance.

Ef kylfan er enn á niðurleið þegar boltinn er sleginn verður lægsti punktur sveiflunnar eftir að við hittum boltann. Kylfan heldur þá áfram niður á við eftir höggið áður en hún nær lægsta punkti og byrjar síðan að hreyfast upp á við aftur. Þess vegna gefur Low point distance okkur góða vísbendingu um hvort fyrsta snerting við jörðina sé rétt tímasett.

Trackman sýnir hvort lægsti punktur sveiflunnar sé áður eða eftir að boltinn er sleginn. A stendur fyrir After og B fyrir Before. Því viljum við almennt sjá A þegar slegið er með járni af jörðinni. Hversu langt á eftir boltanum lægsti punkturinn á að vera fer þó meðal annars eftir kylfu, höggtegund og kylfingnum sjálfum. Í kennslunni nota ég yfirleitt 4–12 cm eftir boltann sem einfalt viðmið fyrir hefðbundin járnahögg, þótt það sé ekki algild regla. Undantekningin er þegar við sláum með driver af tíi. Þá vil ég helst að sem flestir séu með lægsta punktinn áður en við hittum boltann, þar sem það hjálpar okkur að slá lengra svo lengi sem aðrar breytur haldast eins.

Impact height segir okkur hversu ofarlega eða neðarlega á kylfuhausinn við hittum boltann. Flestir kylfingar hafa ágætis tilfinningu fyrir því hvort höggið hafi komið of ofarlega eða of neðarlega á kylfuna, enda gefa bæði boltaflugið og tilfinningin í höndunum yfirleitt góða endurgjöf.

Ef boltinn er hittur of neðarlega á kylfuhausinn getur höggið orðið þunnt eða „skallað“ og í verstu tilfellum „toppað“. Ef boltinn er hins vegar hittur of ofarlega á kylfuhausinn er það yfirleitt vegna þess að kylfan fer of djúpt niður í jörðina eða að snertingin við jörðina verði of mikil eða þung.

Þess vegna er Impact height yfirleitt ein auðveldasta Trackman talan fyrir kylfinga að tengja við eigin tilfinningu. Hún hjálpar okkur að staðfesta hvort snertingin hafi verið of há, of lág eða nálægt því svæði á kylfuhausnum sem við viljum helst hitta.

Svo lengi sem Low point distance er innan þeirra marka sem við viljum getum við notað einfalda reglu til að greina hvað líklega olli því að við hittum boltann of ofarlega eða of neðarlega á kylfuhausinn:

  • Bolti hittur of neðarlega: Kylfan kom lítið eða ekkert við jörðina eftir að hún hitti boltann og sveiflaðist kylfan því ekki nógu neðarlega.
  • Bolti hittur of ofarlega: Kylfan fór of djúpt niður í jörðina við boltann og sveiflaðist kylfan því of neðarlega.

Ef Low point distance er hins vegar langt frá því sem við viljum verður sambandið ekki alveg jafn einfalt. Ef lægsti punktur sveiflunnar er til dæmis of langt fyrir framan eða aftan boltann getum við hitt boltann of neðarlega á kylfuhausinn þótt hæð lægsta punkts sveiflunnar sé í sjálfu sér eðlileg. Þess vegna er mikilvægt að skoða Impact height og low point distance saman þegar við greinum snertinguna við boltann.

Impact offset sýnir okkur hversu langt út á tá eða hæl kylfunnar við hittum boltann. Þetta er eitthvað sem margir kylfingar hafa litla tilfinningu fyrir og virðist fyrir flesta mun erfiðara að greina en Impact height.

Flestir kylfingar sem hafa einhvern tímann hitt boltann vel á miðjan kylfuhausinn finna strax þegar höggið kemur of mikið út á tá eða of mikið út á hæl. Vandamálið er að viðkomandi áttar sig oft aðeins á því að boltinn var ekki hittur á miðjuna, en getur ekki sagt nákvæmlega hvar á kylfuhausnum snertingin átti sér stað. Það virðist jafnvel vera nokkuð algengt að kylfingar telji sig hafa hitt boltann á tánna þegar þeir hittu hann á hælinn og öfugt.

Ef við vitum ekki hvar á kylfuhausinn við hittum boltann þegar slæmu höggin koma verða þær leiðréttingar eða sveifluhugsanir sem við prófum yfirleitt handahófskenndar og líkurnar á stöðugum framförum til lengri tíma ekki miklar.

Þess vegna er Impact offset mjög gagnleg tala. Hún gefur okkur skýra endurgjöf um hvort boltinn var hittur út á tá, út á hæl eða nálægt miðju kylfuhaussins og hjálpar okkur þannig að gera markvissari breytingar í stað þess að giska.

Stefna boltans (Face angle og Club path)

Face angle sýnir okkur í hvaða átt höggflöturinn vísar þegar við hittum boltann. Til einföldunar getum við sagt að Face Angle sýni okkur í hvaða átt kylfuhausinn snýr þegar við hittum boltann.

Trackman sýnir þessa tölu í gráðum, þ.e. hversu margar gráður til hægri eða vinstri kylfuhausinn snýr miðað við skotmarkið okkar þegar við hittum boltann. Ef kylfuhausinn vísar til vinstri sýnir Trackman mínustölu en ef hann vísar til hægri sýnir Trackman plústölu.

Face Angle er sú breyta sem hefur langmest áhrif á byrjunarstefnu boltans. Þess vegna er mikilvægt að skilja í hvaða átt kylfuhausinn þarf að snúa þegar við hittum boltann til að höggið endi sem næst skotmarkinu.

Til að vita í hvaða átt kylfuhausinn þarf að vísa þegar við hittum boltann þurfum við að skilja sambandið á milli Face angle og Club path.

Club path sýnir okkur í hvaða átt kylfuhausinn er að ferðast þegar við hittum boltann. Munurinn á tölunum tveimur er því einfaldur: Face angle segir okkur í hvaða átt kylfuhausinn vísar, en Club path segir okkur í hvaða átt kylfan er að sveiflast þegar boltinn er hittur.

Trackman sýnir Club path einnig í gráðum. Mínustala þýðir að kylfan ferðast til vinstri miðað við skotmarkið en plústala að hún ferðast til hægri.

Til að högg fljúgi alveg beint í átt að skotmarkinu, án sveigju, þurfa bæði Face Angle og Club Path að vera mjög nálægt 0°. Það er þó alls ekki nauðsynlegt að slá bein högg til að spila gott golf. Kylfingar geta spilað mjög vel með smá sveigju til vinstri eða hægri svo lengi sem sambandið á milli Face angle og Club path er stöðugt og fyrirsjáanlegt.

Það sem ræður mestu um sveigju boltans er munurinn á Face angle og Club path. Ef þessar tvær tölur eru eins verður lítil eða engin sveigja á boltanum. Því meiri sem munurinn verður, því meiri sveigju getum við almennt búist við, að því gefnu að boltinn sé hittur nálægt miðju kylfuhaussins.

Hjá flestum kylfingum er Club path tiltölulega stöðug breyta frá höggi til höggs á meðan Face angle getur sveiflast meira. Þess vegna er Face angle oft helsta ástæðan fyrir því að byrjunarstefna og heildarstefna högganna verður óstöðug.

Einföld þumalputtaregla til að skilja hvernig Face angle þarf að tengjast Club path, ef markmiðið er að boltinn sveigi aftur í átt að skotmarkinu, er að Face angle sé u.þ.b. helmingurinn af Club path.

Ef Club path er til dæmis -5°, sem þýðir að kylfan ferðast 5° til vinstri miðað við skotmarkið, gefur Face angle í kringum -2,5° högg sem byrjar aðeins vinstra megin við skotmarkið og sveigir síðan aftur til hægri í átt að skotmarkinu.

Ef Face angle væri hins vegar 0° í sama höggi væri kylfuhausinn að vísa mun meira til hægri miðað við Club path. Boltinn myndi þá byrja nær skotmarkinu en sveigja meira til hægri og enda hægra megin við skotmarkið.

Í hvaða átt kylfuhausinn þarf að vísa þegar boltinn er hittur fer því eftir Club path hvers kylfings og þeirri högglögun sem við viljum skapa.

Club Path tengist einnig öðrum þáttum í sveiflunni, þar á meðal Low point distance. Mjög stór Club path tala er oft merki um að stefna og lögun sveiflubogans sé töluvert til hægri eða vinstri miðað við skotmarkið. Hjá rétthentum kylfingi getur mjög stór jákvæð Club path tala oft fylgt mynstri þar sem fyrsta snerting við jörðina verður fyrr, á meðan mjög neikvæð Club path tala getur fylgt mynstri þar sem fyrsta snerting við jörðina verður seinna. 

Þegar við erum komin út á völl er mikilvægt að við höfum nokkuð góða hugmynd um hvernig Club path okkar er að jafnaði. Þá vitum við líka í grófum dráttum í hvaða átt kylfuhausinn þarf að vísa þegar við hittum boltann til að höggið endi í stefnu við skotmarkið.

Þar sem Club path er hjá flestum kylfingum mun stöðugri breyta frá höggi til höggs en Face angle nota ég mjög oft einfalda þumalputtareglu: Ef boltinn endar of langt til hægri við skotmarkið hefur kylfuhausinn líklega vísað of langt til hægri þegar boltinn var hittur. Að sama skapi, ef boltinn endar of langt til vinstri við skotmarkið, hefur kylfuhausinn líklega vísað of langt til vinstri.

Hagnýt ráð

Næst þegar þú ferð að slá illa, eða ef þú ert að slá illa nú þegar, mæli ég með að þú spyrjir þig þriggja einfaldra spurninga áður en þú byrjar að prófa nýjar hreyfingar eða sveifluhugsanir:

  1. Hvernig var snerting kylfunnar við jörðina?
    Fór kylfan í jörðina á réttum tímapunkti, snerti hún jörðina alls ekki eða fór hún of djúpt niður í jörðina?
  2. Hvar hitti ég boltann á kylfuhausinn?
    Hitti ég boltann nálægt miðju, of langt út á tá eða of langt út á hæl?
  3. Í hvaða átt vísaði kylfuhausinn þegar ég hitti boltann?
    Vísaði hann of langt til hægri eða of langt til vinstri miðað við sveifluferil kylfunnar?

Ef þú slærð slæmt högg er mjög líklegt að þú finnir ástæðuna í svörunum við einni eða fleiri af þessum spurningum. Stundum er það eitt atriði sem fer úrskeiðis, en stundum eru það tvö eða jafnvel þrjú.

Ef þú vilt læra meira um breyturnar sem hafa áhrif á boltaflugið og TrackMan golfhermarnir mæla hvet ég þig að skrá þig á trackmanuniversity.com.

Allt námsefnið þar er ókeypis og að mínu mati vel þess virði fyrir alla kylfinga sem vilja bæta leik sinn að gefa sér tíma til að læra betur hvernig boltaflug verður til og hvernig mismunandi Trackman tölur tengjast því.

Ef þú vilt aðstoð við að skilja tölurnar betur og/eða læra að stjórna þeim geturðu bókað tíma hér að neðan.

Guðmundur Örn Golfkennsla slf.
460326-2220

 

849-1996
gudmundur@nkgolf.is

 

Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnesi
Nesklúbburinn, 170 Seltjarnarnesi