Leggðu niður átta tí eða annað smádót í beinni línu rétt út frá hægri kanti holunnar þar sem fyrsta tíið er um 3 fet frá holunni, annað tíið er um 4 fet frá holunni, þriðja er um 5 fet og svo koll af kolli.
Byrjaðu á að pútta frá 3 fetum og ef boltinn fer í holuna máttu færa þig að næsta tíi. Í hvert skipti sem þú hittir færirðu þig upp stigann og æfingin klárast þegar þú setur lengsta púttið ofan í.
Ég nota þrjár útgáfur af æfingunni sem eru miserfiðar og því auðvelt að aðlaga æfinguna að getustigi hvers kylfings.
1. Auðveldasta útgáfan virkar þannig að þú getur bara farið upp stigann. Ef þú hittir ekki þá reynirðu aftur við sama pútt þangað til þú hittir.
2. Miðútgáfan virkar þannig að í hvert skipti sem þú hittir færistu upp stigann en ef þú hittir ekki þarftu að færa þig niður til baka um eitt þrep.
3. Erfiðasta útgáfan virkar þannig að í hvert skipti sem þú hittir færistu upp stigann en ef þú hittir ekki, sama hversu langt þú varst komin/n, þarftu að byrja alveg upp á nýtt á stysta púttinu.