Ertu stöðugri en þú heldur?

Ertu stöðugri en þú heldur?

„Mig vantar stöðugleika“ er eitt það algengasta sem nemendur segja þegar þeir koma til mín í fyrsta skipti. Það sem mjög margir þeirra eiga sameiginlegt er hins vegar að þeir eru í raun mjög stöðugir. Það er að segja að hreyfingarnar þeirra eru mjög stöðugar, þrátt fyrir að boltaflugið sé það kannski ekki.

Seint síðasta sumar kom upp sú staða að ég fékk til mín fimm nemendur á þremur dögum sem töldu sig öll vera að glíma við óstöðugleika vegna þess að boltinn gat farið í allar áttir. Í raun og veru voru þau hins vegar öll frekar stöðug.

Stöðugleikinn fólst í því að þau hittu öll boltann ítrekað mjög langt út á hæl kylfuhaussins. Þegar góðu höggin komu hittu þau boltann alveg innst á hælinn, svo mikið á hælinn að boltinn lenti nánast á skaftinu.

Svo komu slæmu höggin. Þá hittu þau boltann það mikið út á hæl að með járnkylfunum lenti boltinn neðst á skafti kylfunnar. Þegar boltinn lenti hægra megin á skaftinu skaust hann beint til hægri, þegar hann lenti beint framan á skaftinu þaut hann lágt og nokkuð beint áfram og þegar hann lenti vinstra megin á skaftinu skaust hann beint til vinstri.

Með öðrum orðum var útkoman mjög óstöðug.

Hins vegar, þegar betur var að gáð, voru hreyfingar þeirra allra frekar stöðugar og þau hittu öll boltann á sirka þriggja sentimetra bili á kylfuhausnum. Það bil var bara alltof langt út á hæl.

Með smá aðlögun og einföldum æfingum tókst þeim öllum að færa þetta þriggja sentimetra bil nær miðju kylfuhaussins. Niðurstaðan var að nú voru einhver högg hitt á miðju kylfuhaussins, einhver högg fóru aðeins út á hæl og einhver aðeins út á tá. 

Ekkert þeirra varð stöðugra í hreyfingu en útkoman varð mun stöðugri. Dreifingin á snertingu kylfuhaussins við boltann var í raun svipuð og áður, en hún hafði færst á betri stað á kylfuhausnum. 

Hér að neðan má sjá tvær myndir þar sem stöðugleikinn í hvar boltinn er hittur er sá sami, þ.e. í báðum tilfellum er dreifingin um 3-4 sentimetra bil á kylfuhausnum. Á fyrri myndinni verður útkoma högganna mjög óstöðug en á seinni myndinni verður útkoma högganna mun stöðugri.

Þegar við tölum um stöðugleika í golfii er mikilvægt að gera greinarmun á stöðugleika í hreyfingum og stöðugleika í útkomu. Þegar boltinn fer sitt á hvað er mjög auðvelt að álykta að sveiflan sé óstöðug og að við þurfum að gera hreyfingarnar stöðugri. Það er hins vegar ekki alltaf raunin.

Stundum er kylfingurinn þegar mjög stöðugur í því sem hann er að gera. Vandamálið er einfaldlega að hann er stöðugur í að gera eitthvað sem skilar óstöðugri útkomu.

Markmiðið þarf því ekki alltaf að vera að verða stöðugri. Stundum þarf einfaldlega að færa þann stöðugleika á betri stað.

Ef þú hefur spilað ágætis golf í einhvern tíma en ferð skyndilega að glíma við óstöðugleika í útkomu högganna þinna, þá mæli ég með að þú byrjir á því að skoða vel hvar á kylfuhausinn þú hittir boltann að jafnaði.

Það er góður möguleiki á að þú þurfir aðeins smávægilega aðlögun frekar en að gjörbreyta sveiflunni þinni. Ef þarft aðstoð með sveifluna þína eða einhvern annan hluta leiksins geturðu skoðað fjölbreyttar þjálfunarleiðir hér að neðan.

Guðmundur Örn Golfkennsla slf.
460326-2220

 

849-1996
gudmundur@nkgolf.is

 

Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnesi
Nesklúbburinn, 170 Seltjarnarnesi