Hádegisnámskeið
Viltu taka næsta skref í golfi og nýta veturinn til að verða betri kylfingur?
Á þessu 6 vikna hádegisnámskeiði leggjum við áherslu á að þú lærir ekki bara hvað þú þarft að æfa, heldur líka hvernig og af hverju.
Námskeiðið er byggt upp sem fjölbreytt stöðvaþjálfun þar sem unnið er markvisst með bæði langa og stutta spilið. Kennslan er einstaklingsmiðuð og fær hver þátttakandi leiðsögn sem tekur mið af eigin styrkleikum, veikleikum og markmiðum.
Á námskeiðinu munt þú meðal annars:
- Fá greiningu á styrkleikum og veikleikum í sveiflunni og stutta spilinu.
- Læra fjölbreyttar og markvissar æfingar sem þú getur auðveldlega gert á eigin spýtur í vetur.
- Læra að nýta golfherminn sem þjálfunartæki, skilja hvaða mælingar skipta mestu máli og hvernig þú getur haft áhrif á þær.
- Læra að forgangsraða æfingunum þínum þannig að tíminn sem þú eyðir í golfið skili sem mestum árangri.
Markmiðið er einfalt: Að þú farir af námskeiðinu með skýra mynd af því hvað þú þarft að æfa, hvernig þú átt að gera það og hvers vegna það skiptir máli.
Námskeiðið hentar sérstaklega kylfingum sem hafa náð tökum á grunnatriðum golfleiksins og vilja byggja ofan á þá kunnáttu.
Hægt er að velja um að vera á mánudögum eða miðvikudögum.
📍 Nesvellir, Austurströnd 5
🕛 Hádegistímar kl. 12:00–13:00.
📅 6 vikur – ein æfing í viku
👥 Aðeins 4 þátttakendur í hverjum hópi
Æfðu með tilgang í vetur – og leggðu grunninn að betra golfi næsta sumar!
Hádegisnámskeið
44.900 kr.