a

Golfnámskeið

Hvort sem þú vilt taka þátt í skipulögðu námskeiði eða setja saman sérnámskeið fyrir vinahópinn, er eitthvað fyrir þig í boði.

Golfnámskeið eru frábær leið til að læra nýja tækni og/eða auka færni í öllum helstu höggunum. Námskeiðin eru hönnuð með áherslu á að hver kylfingur fái tækifæri til að þróa sína eigin sveiflu og bæta leikinn á sínum forsendum.

Skoðaðu opnu námskeiðin hér á síðunni eða hafðu samband í gegnum gudmundur@nkgolf.is og setjum saman tíma sem henta þér og þínum hóp!

ATH: Engin skipulögð námskeið eru á döfinni eins og er. Öll skipulögð námskeið eru auglýst á facebook: Guðmundur Örn - Golfkennsla hjá Nesklúbbnum og instagram: Gudmundurorngolf.

Meiri færni og þekking á öllum helstu höggunum.

Markviss leiðsögn fyrir kylfinga á öllum getustigum.

Einstaklingsmiðuð kennsla í litlum hópum.

Betri árangur á vellinum með einföldum ráðum.

Þú getur borgað með apple pay eða greiðslukorti á öruggri greiðslugátt síðunnar.

Þessi vara er ekki til á lager og þvi ófáanleg eins og er.

Einstaklingsmiðuð og árangursdrifin kennsla við bestu aðstæður

Kennslan hjá Guðmundi Erni er sniðin að þínum þörfum og markmiðum, með áherslu á fagmennsku og stöðugar framfarir. Með nýjustu tækni og fyrsta flokks aðstöðu færð þú umgjörð sem eykur bæði leikgleði og árangur. Þetta er þín kennsla, á þínum hraða, með skýrum fókus á árangur.

Umsagnir nemanda minna

★★★★★

,,Ég mæli eindregið með Guðmundi sem golfkennara.
Eftir aðeins nokkra tíma hjá honum var golfsveiflan hjá mér orðin mun betri og ég farin að slá bæði lengra og beinna.
Hann hefur einstakt lag og næmi fyrir því hvað betur mætti fara hjá manni og ennfremur mjög afslappaða og þægilega nærveru.
Hver tími með Guðmundi er því vel þess virði, bæði árangursríkur en ekki síst skemmtilegur“

Elísabet
Elísabet Einarsdóttir
★★★★★

,,Gummi er snillingur í einfalda flókna tækni og gefur manni góð ráð til þess að vinna með, hann sér til þess að maður einbeitir sér bara að því sem skiptir máli til þess að bæta leikinn og gerir það á skemmtilegan og árangursríkan hátt. Ég mæli hiklaust með Gumma fyrir öll þau sem vilja bæta leikinn.“

 

Aðalsteinn Pálsson
0
    0
    Karfa
    Karfan er tóm