Leggðu niður þrjú tí eða annað smádót í beinni línu rétt út fyrir enda holunnar. Fyrsta tíið er um 3 fet frá holunni, annað tíið um 4 fet og þriðja um 5 fet frá holunni. Endurtaktu þetta svo á þremur öðrum stöðum í kringum holuna þannig að tíin myndi kross þar sem holan er í miðjunni.
Það eru ýmsar leiðir til þess að framkvæma æfinguna og auðvelt að skala hana eftir getu hvers kylfings. Dæmi um skölun er:
1. Þú þarft að hitta 10 af 12 púttum til að klára æfinguna.
2. Þú þarft að hitta 11 af tólf púttum til að klára æfinguna.
3. Þú þarft að hitta öllum 12 púttunum í röð til að klára æfinguna.
Þú mátt endilega búa til þína eigin útfærslu, en passaðu bara að markmiðið sé skýrt og að þú þurfir að ná einhverju ákveðnu viðmiði til að klára æfinguna. Með tímanum geturu svo aðlagað viðmiðin þannig að æfingin verði smátt og smátt aðeins erfiðari.