Um mig
Hæ! Ég heiti Guðmundur Örn, yfirleitt kallaður Gummi, og er golfkennari hjá Nesklúbbnum. Ég er menntaður PGA golfkennari og með M.Sc. gráðu í íþróttavísindum og þjálfun og M.Ed. gráðu í heilsuþjálfun og kennslu.
Golf hefur verið mitt helsta áhugamál síðan ég var unglingur og síðan þá hefur áhugi minn á íþróttinni sífellt aukist. Ég spilaði á unglingamótaröð GSÍ frá því ég var 14-18 ára og á fullorðins mótaröð GSÍ í nokkur ár eftir það. Ég spila ennþá reglulega og er í dag með um 0-1 í forgjöf. Síðustu ár hefur áhugi minn á golfi þó snúist meira um að kenna öðrum og hjálpa kylfingum á öllum getustigum að verða betri heldur en að spila sjálfur.
Áhugi minn á golfkennslu kviknaði fyrir alvöru í kringum 2015 þegar ég var í B.Sc. námi í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík. Þar fékk ég tækifæri til að tengja hin ýmsu fög íþróttafræðinnar við golfþjálfun, til dæmis þjálffræði, hreyfingafræði, íþróttasálfræði og styrktarþjálfun.
Haustið 2017 fékk ég námsstyrk frá Golfsambandi Íslands (GSÍ) til M.Sc. gráðu í íþróttavísindum og þjálfun og á tímabilinu 2017-2019 sá ég um að gera líkams- og styrktarmælingar á íslenskum landsliðs- og afrekskylfingum og skoðaði m.a. hvernig líkamshreysti tengist sveifluhraða og frammistöðu í golfi. Í dag starfa ég einnig sem verktaki hjá GSÍ við líkamsmælingar og ráðgjöf tengda þjálfun fyrir landsliðskylfinga hér á landi.
Síðustu ár hef ég leitað mér frekari þekkingar á golfkennslu og vorið 2025 útskrifaðist ég sem PGA golfkennari. Ásamt því hef ég réttindi frá Titleist Performance Institute (TPI) sem eru leiðandi í heiminum á líkamsþjálfun kylfinga og level 1 og 2 réttindi frá Trackman sem gerir mér kleift að nýta nýjustu tækni til að greina nákvæmlega hvaða atriði í sveiflunni hver og einn þarf að leggja áherslu á til að bæta sig.
Í kennslunni legg ég mikla áherslu á að mæta hverjum kylfingi á hans eigin forsendum. Markmiðið er að hjálpa fólki að bæta leikinn sinn á sem skilvirkastan hátt án þess að reyna að breyta of miklu eða vinna gegn þeim hreyfingum sem koma eðlilega fyrir viðkomandi.
Ég legg einnig mikla áherslu á jákvæða upplifun í kennslunni og að hver tími sé ekki síður skemmtilegur en gagnlegur. Að mínu mati ná kylfingar mestum framförum þegar þeir skilja hvað þeir eru að reyna að gera, finna sjálfir mun á breytingunum og hafa gaman af ferlinu á sama tíma.
Guðmundur Örn Golfkennsla slf.
460326-2220
849-1996
gudmundur@nkgolf.is
Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnesi
Nesklúbburinn, 170 Seltjarnarnesi
