Æfðu mistökin til að ná stjórn á þeim

Æfðu mistökin til að ná stjórn á þeim

Notar þú allan tímann á æfingasvæðinu til að æfa þig í „réttri“ hreyfingu? Hvað ef þú gætir orðið betri fyrr með því að æfa það sem er „rangt“?

Með því að æfa okkur í að gera ólíka hluti sem skila ekki endilega góðum höggum, og mögulega mjög lélegum höggum, getum við í sumum tilfellum orðið betri í því sem við viljum raunverulega gera úti á velli.

Hvað á ég við með því?

Ef við eigum til dæmis erfitt með að hitta boltann á miðjan kylfuhausinn getur verið gagnlegt að æfa okkur meðvitað í að hitta boltann mjög mikið út á hæl og mjög mikið út á tá. Þannig þjálfum við okkur í að stýra staðsetningu kylfuhaussins betur og það getur gert það auðveldara að finna miðjuna.

Á sama hátt getum við orðið betri í að stjórna upphafsstefnu boltans með því að æfa okkur reglulega í að byrja boltann viljandi bæði til vinstri og hægri við skotmarkið.

Í fræðunum er nálgun af þessu tagi kölluð differential learning og nota ég hana reglulega í minni þjálfun. Aðferðin byggir á því að auka breytileika milli tilrauna í stað þess að reyna stöðugt að endurtaka nákvæmlega sömu hreyfinguna (Tassignon o.fl., 2021).

Af hverju ætti það að hjálpa?

Hugmyndin á bak við differential learning er að í stað þess að reyna stöðugt að endurtaka sömu hreyfinguna fáum við að kanna margar ólíkar hreyfingar.

Við reynum því ekki bara að gera „rétt“, heldur einnig viljandi að gera of mikið í báðar áttir.

Ef þú átt erfitt með að hitta boltann á miðjan kylfuhausinn gæti verkefnið til dæmis verið:

  • högg eins langt út í tá og þú getur
  • högg eins langt út í hæl og þú getur
  • aðeins út í tá
  • aðeins út í hæl
  • sem næst miðju

Ef þú átt erfitt með stefnu gæti verkefnið verið að byrja boltann:

  • mikið til vinstri
  • mikið til hægri
  • aðeins til vinstri
  • aðeins til hægri
  • beint á skotmarkið

Við erum þá ekki að æfa slæm högg vegna þess að við viljum verða góð í að slá slæm högg. Við erum að læra betur hvaða breytingar við þurfum að gera til að stjórna útkomunni.

Því meiri stjórn sem við höfum á báðum endum skalans, því auðveldara getur verið að finna miðjuna.

Hvað segja rannsóknirnar?

Differential learning hefur verið rannsakað í mörgum mismunandi íþróttum, meðal annars í fótbolta, körfubolta, tennis, blaki, íshokkí og frjálsíþróttum (Tassignon o.fl., 2021).

Í stórri samantektarrannsókn frá 2021 voru skoðaðar 27 rannsóknir með samtals tæplega 900 þátttakendum. Niðurstöðurnar sýndu að differential learning kom að meðaltali aðeins betur út en aðrar þjálfunaraðferðir þegar færnin var prófuð strax eftir æfingatímabilið.

Það sem er hins vegar sérstaklega áhugavert er að þegar færnin var prófuð aftur síðar, eftir að lengri tími hafði liðið frá æfingunum, var munurinn meiri. Niðurstöðurnar benda því til að differential learning geti haft jákvæð áhrif á það hversu vel færni varðveitist til lengri tíma.

Þetta er mikilvægt vegna þess að þegar færnin er prófuð aftur eftir hlé fáum við betri vísbendingu um hvort raunverulegt hreyfinám hafi átt sér stað en með því að horfa eingöngu á frammistöðu strax að æfingu lokinni (Tassignon o.fl., 2021).

Þess má þó geta að niðurstöður milli rannsókna voru mismunandi og eins var oft töluverður munur á gæðum rannsóknanna. Rannsakendurnir töldu því of snemmt að fullyrða að differential learning væri almennt betri aðferð en aðrar leiðir til hreyfináms, en niðurstöðurnar eru samt sem áður mjög áhugaverðar (Tassignon o.fl., 2021).

Að standa sig vel á æfingu er ekki það sama og að læra

Þetta er mikilvægur munur.

Ef þú slærð 30 bolta í röð með sömu kylfu, af sama stað og á sama skotmark verður þú líklega betri í verkefninu eftir því sem líður á æfinguna.

En það þýðir ekki endilega að þú hafir lært færnina betur til lengri tíma.

Í rannsóknum á hreyfinámi er gerður greinarmunur á tímabundinni frammistöðu á æfingu og varanlegri breytingu á getu til að framkvæma færni. Þess vegna eru próf þar sem færnin er skoðuð aftur eftir hlé frá æfingum mikilvæg þegar raunverulegt nám er metið. Slík próf hafa einmitt komið vel út í rannsóknum á differential learning í ýmsum íþróttum (Tassignon o.fl., 2021; Nijmeijer o.fl., 2025).

Þess vegna þurfum við alls ekki að slá bara góð högg á æfingu til að æfingin hafi verið góð eða að hreyfinám hafi átt sér stað.

Stundum getur æfing þar sem þú slærð viljandi bæði til vinstri og hægri, í hæl og í tá eða of hátt og of lágt á kylfuhausinn verið gagnlegri fyrir langtíma hreyfinám en að reyna að slá sama höggið aftur og aftur alla æfinguna.

Prófaðu að finna öfgar í báðar áttir

Næst þegar þú ert að glíma við ákveðið vandamál á æfingasvæðinu skaltu prófa að gera ekki strax ráð fyrir því að eina mögulega lausnin sé að finna „rétta“ hreyfingu og endurtaka hana.

Prófaðu þess í stað að kanna báðar áttir.

Ef þú hittir boltann alltaf á hælinn, reyndu að hitta hann viljandi langt út í tá.

Ef boltinn byrjar alltaf til hægri, reyndu að byrja nokkra bolta viljandi langt til vinstri.

Ef kylfan fer oft of djúpt í jörðina, prófaðu að ýkja það í hina áttina og slá högg þar sem kylfan snertir aldrei grasið.

Markmiðið er ekki að ein af þessum ýktu hreyfingum verði nýja golfsveiflan þín. Markmiðið er að bæta stjórnina.

Því betri sem þú verður í að framkalla ólíkar útkomur viljandi, því meiri möguleika hefur þú á að framkalla þá útkomu sem þú vilt þegar það skiptir máli.

Heimildir

Burkaitė, G., & Paulauskas, R. (2025). Differential learning in sports games: A systematic review of empirical research. Pedagogika, 158(2). https://doi.org/10.15823/p.2025.158.3

Nijmeijer, E. M., Brals, F. D., Kempe, M., Elferink-Gemser, M. T., & Benjaminse, A. (2025). How are athletes trained to move? A systematic review exploring the effects of implicit and explicit learning on biomechanics of sport-specific tasks. Journal of Biomechanics, 184, 112671. https://doi.org/10.1016/j.jbiomech.2025.112671

Tassignon, B., Verschueren, J., Baeyens, J.-P., Benjaminse, A., Gokeler, A., Serrien, B., & Clijsen, R. (2021). An exploratory meta-analytic review on the empirical evidence of Differential Learning as an enhanced motor learning method. Frontiers in Psychology, 12, 533033. https://doi.org/10.3389/fpsyg.2021.533033

Guðmundur Örn Golfkennsla slf.
460326-2220

 

849-1996
gudmundur@nkgolf.is

 

Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnesi
Nesklúbburinn, 170 Seltjarnarnesi