TPI Hreyfigreining
TPI Hreyfigreining
TPI hreyfigreining hentar kylfingum sem vilja bæta hreyfigetu, liðleika og stjórn á hreyfingum sem geta haft áhrif á golfsveifluna. Í hreyfigreiningunni fer ég með þig í gegnum nokkur einföld próf sem meta hreyfimynstur og skoða hvort takmarkanir í hreyfigetu, stöðugleika eða líkamsstjórn geti haft áhrif á hvernig þú hreyfir þig í sveiflunni.
Hægt er að velja um tvær útfærslur:
TPI Hreyfigreining
Þú ferð í gegnum TPI hreyfigreininguna og færð niðurstöður og útskýringu á því hvað kom fram í prófunum. Þú getur svo notað þínar eigin æfingar eða beðið þjálfara um æfingar sem hjálpa þér að bæta veikleikana þína.
TPI Hreyfigreining + sérsniðin æfingaáætlun
Þú ferð í gegnum TPI hreyfigreininguna og færð niðurstöður og útskýringu á því hvað kom fram í prófunum.
Auk greiningarinnar útbý ég sérsniðna æfingaáætlun út frá niðurstöðunum. Áætlunin er send í gegnum MyTPI appið þar sem þú færð leiðbeiningar og myndbönd af öllum æfingunum.
Ef þú vilt vita meira um þjónustuna eða ert óviss um hvor leiðin henti þér betur er þér velkomið að hafa samband með tölvupósti á gudmundur@nkgolf.is eða í síma 849-1996.
Guðmundur Örn Golfkennsla slf.
460326-2220
849-1996
gudmundur@nkgolf.is
Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnesi
Nesklúbburinn, 170 Seltjarnarnesi