Golf og styrkur
Golf og styrkur er tilboðspakki fyrir þá sem vilja alhliða golfþjálfun með því að taka líkamlega þáttinn í gegn samhliða reglulegri golfkennslu!
Pakkinn inniheldur:
- Fjóra einkatíma í golfkennslu sniðna að þínum þörfum. Þú ræður hvað við tökum fyrir í hverjum tíma og velur hvort þú viljir 30, 45 eða 60 mínútna kennslustundir.
- Sérsniðið styrktarprógram og/eða TPI hreyfigreiningu.
Alhliða golfþjálfun sniðin að þínum markmiðum.
Meiri styrkur og betri hreyfifærni.
Minni líkur á meiðlsum og auknar líkur á meiri sveifluhraða.
Einkatímar sniðnir að þínum óskum.
Þú getur borgað með apple pay eða greiðslukorti á öruggri greiðslugátt síðunnar.
Einstaklingsmiðuð og árangursdrifin kennsla við bestu aðstæður
Kennslan hjá Guðmundi Erni er sniðin að þínum þörfum og markmiðum, með áherslu á fagmennsku og stöðugar framfarir. Með nýjustu tækni og fyrsta flokks aðstöðu færð þú umgjörð sem eykur bæði leikgleði og árangur. Þetta er þín kennsla, á þínum hraða, með skýrum fókus á árangur.
Umsagnir nemanda minna
★★★★★
,,Ég mæli eindregið með Guðmundi sem golfkennara.
Eftir aðeins nokkra tíma hjá honum var golfsveiflan hjá mér orðin mun betri og ég farin að slá bæði lengra og beinna.
Hann hefur einstakt lag og næmi fyrir því hvað betur mætti fara hjá manni og ennfremur mjög afslappaða og þægilega nærveru.
Hver tími með Guðmundi er því vel þess virði, bæði árangursríkur en ekki síst skemmtilegur“
Elísabet Einarsdóttir
★★★★★
Gummi er snillingur í einfalda flókna tækni og gefur manni góð ráð til þess að vinna með, hann sér til þess að maður einbeitir sér bara að því sem skiptir máli til þess að bæta leikinn og gerir það á skemmtilegan og árangursríkan hátt. Ég mæli hiklaust með Gumma fyrir öll þau sem vilja bæta leikinn.