Styrkur og hreyfigreining
Taktu líkamlega þáttinn í gegn með æfingaprógrammi sérsniðnu að þér og þínum markmiðum.
TPI hreyfigreining
Sérsniðið æfingaprógram fyrir kylfinga sem vilja leggja áherslu á aukna hreyfigetu, liðleiðleika og jafnvægi í hreyfingum sem geta skipt lykilmáli í golfsveiflunni.
Ég leiði þig í gegnum ítarlega hreyfigreiningu sem sýnir okkur hvar líkamlegir styrkleikar og veikleikar þínir liggja út frá hreyfingum í golfsveiflunni.
Að greiningunni lokinni færðu æfingaplan sem er sérstaklega hannað til að vinna í þínum veikleikum.
Tíminn tekur á bilinu 45-60 mínútur.
Þú færð prógramið sent í gegnum MyTPI appið þar sem þú hefur aðgang að myndböndum af öllum æfingunum.
Sérsniðið styrktarprógram
Fáðu styrktarprógram sérsniðið að þínum þörfum og markmiðum.
Þú svarar spurningalista sem gefur innsýn í líkamlega færni þína, markmið, aðbúnaðinn sem þú hefur og hversu mikið þú vilt æfa. Út frá svörunum bý ég til styrktarprógram sem hentar þér og þínum þörfum.
Við finnum tíma til að hittast á Nesvöllum þar sem ég kenni þér að gera æfingarnar rétt og hvernig þú átt að byggja upp álagið.
Æfingakennslan tekur um 45-60 mínútur.
Ef einhverjar æfingar í prógraminu henta þér illa þá skiptum við þeim út fyrir aðrar, þangað til prógramið hentar þér.
Þú færð prógramið sent í gegnum MyTPI appið þar sem þú hefur aðgang að myndböndum af öllum æfingunum.
Meiri styrkur og betri hreyfifærni.
Auknar líkur á meiri sveifluhraða.
Minni líkur á meiðslum.
Myndbönd af öllum æfingum í gegnum MyTPI appið.
Styrkur og hreyfigreining verð:
TPI hreyfigreining = 16.500 kr.
Sérsniðið styrktarprógram = 29.900 kr.
Til að panta TPI hreyfigreiningu eða sérsniðið styrktarprógram þarf að senda póst á gudmundur@nkgolf.is.
Einstaklingsmiðuð og árangursdrifin kennsla við bestu aðstæður
Kennslan hjá Guðmundi Erni er sniðin að þínum þörfum og markmiðum, með áherslu á fagmennsku og stöðugar framfarir. Með nýjustu tækni og fyrsta flokks aðstöðu færð þú umgjörð sem eykur bæði leikgleði og árangur. Þetta er þín kennsla, á þínum hraða, með skýrum fókus á árangur.
Umsagnir nemanda minna
★★★★★
,,Ég mæli eindregið með Guðmundi sem golfkennara.
Eftir aðeins nokkra tíma hjá honum var golfsveiflan hjá mér orðin mun betri og ég farin að slá bæði lengra og beinna.
Hann hefur einstakt lag og næmi fyrir því hvað betur mætti fara hjá manni og ennfremur mjög afslappaða og þægilega nærveru.
Hver tími með Guðmundi er því vel þess virði, bæði árangursríkur en ekki síst skemmtilegur“

Elísabet Einarsdóttir
★★★★★
,,Gummi er snillingur í einfalda flókna tækni og gefur manni góð ráð til þess að vinna með, hann sér til þess að maður einbeitir sér bara að því sem skiptir máli til þess að bæta leikinn og gerir það á skemmtilegan og árangursríkan hátt. Ég mæli hiklaust með Gumma fyrir öll þau sem vilja bæta leikinn.“
