HÁDEGISNÁMSKEIÐ
Golfnámskeið í hádeginu sem breyta því hvernig þú hugsar um golfsveifluna!
Síðustu hádegisnámskeið vorannar 2026 verða sex vikur. Þau byrja næstsíðustu vikuna í mars og enda síðustu vikuna í apríl. Fullkomin tímasetning til að undirbúa þig sem best undir golfsumarið 2026!
Hádegisnámskeiðin hafa verið þau vinsælustu hjá mér síðustu ár – og ekki af ástæðulausu. Á námskeiðunum lærirðu betur að skilja eigin sveiflu, greina hvað hefur áhrif á flug boltans og hvernig þú getur sjálf/ur greint og leiðrétt villur í leiknum þínum.
Við vinnum markvisst í TrackMan golfhermum til að tengja saman tilfinninguna í líkamanum við raunverulegar mælingar. Þannig lærir þú að lesa gögnin, sjá mynstur í höggunum þínum og skilja hvað raunverulega skiptir máli í sveiflunni þinni.
Kennslan fer fram í litlum hópum með 3–4 þátttakendum, þar sem hver og einn fær persónulega leiðsögn. Hver tími er 60 mínútur, frá kl. 12:00–13:00, og þú velur þann dag sem hentar þér best – mánudag, þriðjudag, miðvikudag eða fimmtudag.
Allir tímar eru byggðir upp eins: Helmingur tímans fer í að vinna í sveiflunni í golfhermi og helmingur tímans fer í pútt- og vippæfingar. Æfingarnar sem við notum eru einfaldar, markvissar og hannaðar þannig að allir geti sett þær upp sjálfir og æft sig áfram á eigin tíma eftir námskeiðið.
Markmiðið er að gera þig sjálfstæðari kylfingi – að þú lærir að skilja leikinn þinn, sjá hvað veldur mistökum og geta leiðrétt þau á eigin spýtur.
Alls eru aðeins 16 sæti í boði – fjögur á hverjum degi – og námskeiðin hefjast í næstsíðustu vikuna í mars.
Verð = 37.500 - 45.000 kr.
Ath: Námskeiðin eru hugsuð fyrir fólk sem er byrjað í golfi og hefur amk spilað nokkra hringi á golfvelli. Lágmarksskráning til að námskeið fari fram eru 3 nemendur.
- Betri skilningur á eigin sveiflu og höggstöðunni
- Lærðu að greina og leiðrétta villur sjálfur.
- Markviss þjálfun í Trackman golfhermi og stutta spilinu.
- Einfaldar æfingar sem allir geta lært að gera sjálfir.
Skoða úrval
Fyrirspurnir: gudmundur@nkgolf.is eða í síma 849-1996

Einstaklingsmiðuð og árangursdrifin kennsla við bestu aðstæður
Kennslan hjá Guðmundi Erni er sniðin að þínum þörfum og markmiðum, með áherslu á fagmennsku og stöðugar framfarir. Með nýjustu tækni og fyrsta flokks aðstöðu færð þú umgjörð sem eykur bæði leikgleði og árangur. Þetta er þín kennsla, á þínum hraða, með skýrum fókus á árangur.
Umsagnir nemanda minna
★★★★★
,,Ég mæli eindregið með Guðmundi sem golfkennara.
Eftir aðeins nokkra tíma hjá honum var golfsveiflan hjá mér orðin mun betri og ég farin að slá bæði lengra og beinna.
Hann hefur einstakt lag og næmi fyrir því hvað betur mætti fara hjá manni og ennfremur mjög afslappaða og þægilega nærveru.
Hver tími með Guðmundi er því vel þess virði, bæði árangursríkur en ekki síst skemmtilegur“

Elísabet Einarsdóttir
★★★★★
Gummi er snillingur í einfalda flókna tækni og gefur manni góð ráð til þess að vinna með, hann sér til þess að maður einbeitir sér bara að því sem skiptir máli til þess að bæta leikinn og gerir það á skemmtilegan og árangursríkan hátt. Ég mæli hiklaust með Gumma fyrir öll þau sem vilja bæta leikinn.


