Byrjendapakki
Byrjendapakkinn inniheldur fjóra 45 mínútna einka- eða paratíma þar sem farið er yfir grunnatriði helstu högga leiksins. Í fyrsta tímanum er farið yfir pútt, í öðrum tímanum vipp og stutta spilið og í þriðja og fjórða tímanum er unnið með fulla sveiflu.
Byrjendapakkinn er frábær leið til að taka fyrstu skrefin í golfi. Þar sem um einka- eða paratíma er að ræða fær hver nemandi meiri athygli, einstaklingsmiðaða kennslu og markvissari endurgjöf en almennt er hægt að veita á hefðbundnum byrjendanámskeiðum þar sem fleiri þátttakendur eru saman í hópi.
Byrjendapakkinn er 10% ódýrari heldur en ef sami tímafjöldi er bókaður í stökum tímum.
Byrjendapakki fyrir einn = 54.000 kr.
Byrjendapakki fyrir tvo = 64.800 kr.
Til þess að bóka byrjendapakka þarf að senda póst á gudmundur@nkgolf.is. Einnig er hægt að fá frekari upplýsingar í síma 849-1996.
Guðmundur Örn Golfkennsla slf.
460326-2220
849-1996
gudmundur@nkgolf.is
Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnesi
Nesklúbburinn, 170 Seltjarnarnesi